Verkefni
Skoðaðu verkefnin
Hér má sjá úrval valdra verkefna sem sýna nálgun Nesmo í verki, frá þarfagreiningu yfir í fullbúna lausn.
Scrollaðu niður
Heela
Rafknúin farartæki fyrir einstaklinga og fyrirtæki
Um fyrirtækið
Heela er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á rafknúnum farartækjum. Fyrirtækið býður upp á fjölbreytt úrval rafskutla, golfbíla, pallhjóla og fjórhjóla með áherslu á gæði, öryggi og nútímalega tækni. Markmið Heela er að bjóða hagkvæmar og umhverfisvænar lausnir sem henta íslenskum aðstæðum.
Verkið
Nesmo sá um þarfagreiningu, hönnun og smíði nýrrar vefverslunar fyrir Heela, ásamt uppsetningu vara og efnis. Áhersla var lögð á að gera fjölbreytt vöruúrval fyrirtækisins aðgengilegt og auðvelt að skoða, með skýrri framsetningu á vörum og upplýsingum. Útkoman er stílhrein og notendavæn vefverslun sem styður vel við vörumerkið og gerir viðskiptavinum einfalt að kynna sér vörurnar og ganga frá kaupum.
North West Import
Innflutningfyrirtæki á Sauðárkróki
Um fyrirtækið
North West Import er innflutningsfyrirtæki með aðsetur á Sauðárkróki. Fyrirtækið sérhæfir sig í hágæða innréttingum sem henta jafnt einstaklingum, fyrirtækjum sem og stofnunum. Markmið þeirra er að veita áreiðanlega þjónustu og vandaðar vörur sem standast kröfur um gæði, endingu og fagurfræði.
Verkið
Nesmo sá um alla vinnu við nýjan vef North West Import, þar á meðal þarfagreiningu, hönnun, smíði, textagerð og myndvinnslu. Niðurstaðan er snyrtilegur, stílhreinn og notendavænn vefur sem endurspeglar fagmennsku fyrirtækisins og vöruframboðið á áhrifaríkan hátt.
Heklan Atvinnuþróun
Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja
Um fyrirtækið
Heklan, Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja, var stofnuð árið 2011 og starfar að atvinnu- og byggðaþróun á svæðinu. Félagið vinnur að fjölbreyttum verkefnum í samstarfi við sveitarfélög, ráðuneyti og Byggðastofnun, með það að markmiði að efla nýsköpun og styrkja atvinnulíf á Suðurnesjum.
Verkið
Nesmo sá um þarfagreiningu, hönnun og smíði nýs vefs fyrir Hekluna, ásamt myndvinnslu og textagerð. Útkoman er snyrtilegur og notendavænn vefur sem miðlar upplýsingum og þjónustu Heklunnar á skýran og aðgengilegan hátt. Vefurinn endurspeglar fagmennsku félagsins og styður vel við markmið þess um að vera fyrsti viðkomustaður þeirra sem leita stuðnings í atvinnu- og nýsköpunarmálum á Suðurnesjum.
Góðar Sögur
Sögur af fólki og lífinu á Reykjanesi
Um verkefnið
Góðar Sögur er vettvangur fyrir einlægar, skemmtilegar og hjartnæmar sögur af fólki á Reykjanesi. Þar er fjallað um lífið, fólkið og augnablikin sem skipta máli í gegnum fjölbreyttar sögur, hlaðvörp og annað efni.
Verkið
Nesmo sá um smíði og útfærslu vefsins með áherslu á að fjölbreytt efni verkefnisins fengi að njóta sín. Vefurinn heldur utan um sögur, hlaðvörp og annað efni í skýrri og sjónrænni uppbyggingu sem auðvelt er að skoða á öllum skjástærðum. Niðurstaðan er lifandi og notendavænn vefur sem endurspeglar vel karakter og ásýnd verkefnisins.
Dögun
Íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki sem sérhæfir sig í kaldsjávarrækju
Um fyrirtækið
Dögun er íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki á Sauðárkróki sem hefur sérhæft sig í vinnslu kaldsjávarrækju frá árinu 1983. Fyrirtækið framleiðir hágæða rækju fyrir bæði innlenda og erlenda markaði og leggur ríka áherslu á gæði, rekjanleika, áreiðanleika og sjálfbæra nýtingu auðlinda.
Verkið
Nesmo sá um þarfagreiningu, hönnun og smíði nýs vefs fyrir Dögun, ásamt textagerð, myndvinnslu og uppsetningu efnis. Áhersla var lögð á að kynna fyrirtækið, vörurnar og starfsemina á skýran og faglegan hátt ásamt því að miðla áherslum Dögunar á gæði og sjálfbærni. Niðurstaðan er stílhreinn og notendavænn vefur sem endurspeglar vel reynslu og fagmennsku fyrirtækisins.
King Eider
Selur og framleiðir vandaðar sængur úr íslenskum æðardúni
Um fyrirtækið
King Eider er fjölskyldurekið fyrirtæki í Stykkishólmi, stofnað árið 1991. Það hreinsar æðardún frá bændum víðsvegar um landið og rekur Æðarmiðstöð Íslands. Eigendurnir eru æðarbændur í eyjum Breiðafjarðar. King Eider framleiðir og flytur út hágæða vörur þar sem sjálfbærni Íslands er í fyrirrúmi.
Verkið
Nesmo endurgerði vef King Eider út frá fyrirliggjandi hönnun, mótaði einnig nýja hluta og sá um þarfagreiningu og uppsetningu vara á upplýsandi hátt. Allur vefurinn var smíðaður frá grunni af Nesmo. Útkoman er glæsilegur og stílhreinn vefur í anda fyrirtækisins.
Mundo ferðaskrifstofa
Ferðaskrifstofa
Um fyrirtækið
Mundo alþjóðleg ráðgjöf var stofnuð árið 2011 af Margréti Jónsdóttur Njarðvík. Fyrirtækið sameinar áratuga reynslu í menntun, ferðalögum og menningu, þar sem fræðsla og upplifun fara saman. Mundo stendur fyrir menntun, skemmtun, menningu og þjálfun.
Verkið
Nesmo sá um þarfagreiningu, hönnun og smíði nýs vefs fyrir Mundo, ásamt uppsetningu bókunarkerfis sem gerir viðskiptavinum kleift að ganga frá ferðum á einfaldan hátt. Útkoman er notendavænn og fagur vefur þar sem ferðir og upplifun eru kynnt á skýran og aðlaðandi hátt.
Stubbahús
Selur og framleiðir stubbahús fyrir sígarettustubba
Um fyrirtækið
IsoTec ehf. er íslenskt framleiðslufyrirtæki sem hefur sérhæft sig í vinnslu á málmhlutum og sérlausnum fyrir iðnað og fyrirtæki síðan 1997. Fyrirtækið hannar og framleiðir meðal annars Stubbahúsin, endingargóð og umhverfisvæn lausn fyrir sígarettustubba.
Verkið
Nesmo sá um þarfagreiningu, hönnun og smíði nýs vefs fyrir Stubbahús, ásamt myndvinnslu og textagerð. Útkoman er snyrtilegur og notendavænn vefur sem sýnir vörur og upplýsingar á skýran og faglegan hátt, í takt við gæði og áreiðanleika vörunnar sjálfrar.
Smarthouse
Selur gámahús og gámahúsalausnir
Um fyrirtækið
Smarthouse er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í gámahúsalausnum fyrir fjölbreytta starfsemi. Fyrirtækið býður sveigjanlegar lausnir þar sem viðskiptavinir geta hannað eigið gámahús frá grunni, valið efni, útfærslur og samsetningar sem henta þeirra þörfum og stíl.
Verkið
Nesmo sá um þarfagreiningu, hönnun og smíði nýs vefs fyrir Smarthouse, ásamt myndvinnslu, textagerð og uppsetningu umfangsmikils efnis. Niðurstaðan er snyrtilegur og notendavænn vefur sem kynnir vörur og upplýsingar á skýran og faglegan hátt.
Minningartré
Fallegar minningarsíður til að varðveita minningar
Um verkefnið
Minningartré er nýstárlegt og fallegt verkefni sem sameinar náttúru, tækni og minningar. Hugmyndin byggir á því að heiðra látna með lifandi trjám sem verða að varanlegum minnisvörðum. Aðstandendur geta valið á milli þriggja trjátegunda: reyniviðar, stafafuru og birkis, sem öll eru sett í lífbrjótanlegar umbúðir. Hverju tréi fylgir QR kóði sem vísar á sérstaka minningarsíðu þar sem hægt er að lesa minningar, skoða myndir og skilja eftir kveðjur.
Verkið
Nesmo sá um þarfagreiningu, hönnun og smíði vefsins, ásamt myndvinnslu, textagerð og útfærslu flókinna lausna fyrir minningarsíður og vefverslun. Vefurinn gerir viðskiptavinum kleift að kaupa minningarsíður og vörur, stofna eigin síður og tengja þær við QR kóða á leiðum látinna. Niðurstaðan er falleg, notendavæn og tæknilega vönduð lausn sem nær utan um viðkvæmt og mikilvægt verkefni á virðulegan hátt.
Fish Partner
Ferðaskrifstofa sem selur einnig veiðileyfi
Um fyrirtækið
FishPartner er íslenskt fyrirtæki með áratuga reynslu í stangveiði, leiðsögn og skipulagningu veiðiferða. Fyrirtækið starfar bæði sem ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjandi og býður upp á heildarþjónustu fyrir innlenda og erlenda veiðimenn.
Verkið
Nesmo þróaði sérsniða dagatalslausn fyrir FishPartner sem gerir gestum kleift að skoða veiðiferðir og gistingu á einfaldan og sjónrænt skýran hátt. Kerfið dregur saman upplýsingar úr WooCommerce og birtir framboð, verð og lausa daga í notendavænu dagatali fyrir mismunandi þjónustuflokka: laxveiði, silungsveiði, silungsveiðivötn og gistingu. Notendur geta bókað beint með einum smelli, sem eykur sjálfvirkni, bætir upplifun gesta og tryggir að mikilvægar upplýsingar séu ávallt réttar og uppfærðar.
Ertu með verkefni í huga?
Segðu okkur frá því og fáðu ókeypis ráðgjöf. Við finnum réttu lausnina saman.
Hafa samband →
